Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Peningaleitin mikla....

Alveg er þetta lýsandi dæmi um það hvernig þetta er allt orðið, alveg klár á því að þetta er nú ekki eina millifærslan sem "týndist" í bankakerfinu.....
mbl.is Peningarnir týndust í kerfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppan í lagatextana......

Kominn tími til að endurskapa dægurlagaflóruna


 

Þetta er nýr texti við lagið söknuð með Villa Vil

Mér finnst ég varla heill né hálfur maður
Og heldur blankur, því er verr
Ef væri aur hjá mér, væri ég glaður 
Betur settur en ég er 

Eitt sinn verða allir menn að borga
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt verð ég að segja,
að lánið fellur allt of fljótt.

Við gátum spreðað, gengið um,
gleymt okkur í búðunum.
Engin svör eru við stjórnarráð
Gengið saman hönd í hönd,
Saman flogið niður á strönd.
Fundið stað, sameinað beggja lán.

Horfið er nú hlutabréf og lánsfé
Í veski mínu hefur eymdin völd
Í dag ræður bara sultarólin
Nú einn ég sit um skuldavönd

Eitt sinn verða allir menn að borga
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt verð ég að segja,
að lánið fellur allt of fljótt.

Ég horfi yfir bankann minn
Hugsi hvort hann hleypi mér inn
Ég alltaf gat treyst á þig
Í að fjármagna mig
Ég reyndar skulda allstaðar 
Þá napurt er, það næðir hér 
og nístir mig.

Nýji textinn við Ísland er land þitt

Ísland var land mitt, ég aldrei því gleymi, 
Ísland í gjaldþroti sekkur í sæ, 
íslensku krónun´í banka ei geymi
við íslenska hagkerfið segi ég bæ, 
Ísland í erfiðum tímum nú stendur 
Íslenska stjórnin hún failar margfallt 
Íslenski seðillinn er löngu brenndur 
Ísland er landið sem tók af mér allt 

Og svo hérna ein dánarfregn rétt í lokin......

krónan


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband